Flest fyrirtæki kynntust gervigreind í gegnum spjall: spurning inn, svar út. Næsta skref er þegar komið í notkun. Gervigreindarfulltrúar (AI agents) svara ekki aðeins spurningum heldur vinna verk: sækja gögn, fylla út, uppfæra skrár og ljúka málum í kerfunum sem fyrirtækið notar nú þegar.
MCP er staðallinn sem gerir þetta gerlegt í stærri stíl, því hann gefur fulltrúum sameiginlega og stýrða leið inn í kerfi fyrirtækja. Hér förum við yfir hvað fulltrúar eru, hvað MCP gerir, hvar fulltrúar skila mestu og hvaða reglur þurfa að vera á hreinu áður en þeir fá aðgang að raunverulegum gögnum.
Hvað er gervigreindarfulltrúi?
Fulltrúi er gervigreind sem hefur fengið markmið, aðgang að verkfærum og reglur um hvað hann má gera. Í stað þess að starfsmaður afriti upplýsingar úr tölvupósti yfir í bókunarkerfi getur fulltrúinn lesið erindið, flett upp viðskiptavininum, lagt til bókun og beðið um samþykki áður en hún er staðfest.
Í framkvæmd vinnur fulltrúi í lotum. Hann les verkefnið, ákveður hvaða verkfæri hann þarf, notar það, skoðar niðurstöðuna og ákveður næsta skref, þar til verkinu er lokið eða hann þarf að spyrja manneskju. Gæðin ráðast því ekki aðeins af líkaninu heldur ekki síður af verkfærunum sem hann fær og leiðbeiningunum sem hann vinnur eftir.
Munurinn á fulltrúa og hefðbundinni sjálfvirkni er sveigjanleiki. Hefðbundin sjálfvirkni fylgir föstum reglum og stoppar þegar eitthvað óvænt gerist. Fulltrúi ræður við breytileg erindi, en þarf þess vegna skýrari ramma. Ef verkefnið fylgir alltaf sömu reglum er hefðbundin sjálfvirkni yfirleitt bæði ódýrari og traustari kostur.
Hvað er MCP?
MCP (Model Context Protocol) er opinn staðall sem Anthropic kynnti árið 2024 og helstu gervigreindarfyrirtæki styðja nú, þar á meðal OpenAI, Google og Microsoft. Hann skilgreinir sameiginlega leið fyrir gervigreind til að tengjast kerfum: hvaða gögn hún má lesa og hvaða aðgerðir hún má framkvæma.
Einfaldast er að hugsa um MCP sem samþættingu fyrir gervigreind. Í stað þess að smíða sérstaka tengingu fyrir hvert gervigreindartól setur fyrirtækið upp einn MCP-þjón ofan á kerfið sitt. Þá geta fulltrúar eins og ChatGPT, Claude eða eigin fulltrúar fyrirtækisins notað hann, með sömu aðgangsstýringu.
MCP-þjónn getur boðið fram þrennt: verkfæri, sem eru aðgerðir eins og að fletta upp pöntun eða stofna bókun, gögn og skjöl sem fulltrúinn má lesa, og tilbúin fyrirmæli fyrir algeng verkefni. Þjónninn getur keyrt á tölvu notandans eða sem vefþjónusta sem margir tengjast. Í síðara tilvikinu skráir notandinn sig inn, oftast með OAuth, svo hver og einn sjái aðeins það sem hann hefur heimild til.
Fyrir fyrirtæki sem selja hugbúnað eða reka eigin kerfi skiptir þetta miklu. Viðskiptavinir þeirra og starfsfólk eru farin að vinna í gegnum gervigreind og vilja geta spurt hana um stöðu, pantanir eða gögn. Kerfi með MCP-þjóni verður hluti af því vinnulagi. MCP-þjónn byggir yfirleitt ofan á API sem er þegar til, svo kerfi með vel skilgreint API á stuttan veg fyrir höndum.
Hvar skila fulltrúar mestu?
- Erindi sem berast í tölvupósti eða spjalli og þarf að flokka, svara eða skrá í kerfi.
- Bókanir, pantanir og breytingar sem kalla á uppflettingu í fleiri en einu kerfi.
- Skjöl eins og reikningar, kvittanir og umsóknir sem þarf að lesa og skrá.
- Innri spurningar starfsfólks sem svara má úr handbókum, samningum og verklagsreglum.
- Skýrslur og samantektir sem í dag eru settar saman í höndunum úr mörgum kerfum.
Sameiginlegt með þessum verkefnum er að þau eru tíð, fylgja svipuðu mynstri en eru nógu breytileg til að fastar reglur dugi illa. Þau eiga það líka sameiginlegt að manneskja getur fljótt séð hvort fulltrúinn gerði rétt, sem gerir auðvelt að byrja með mannlegt samþykki á hverri aðgerð.
Það sem þarf að vera á hreinu fyrst
- Aðgangur: fulltrúi á aðeins að sjá og gera það sem hlutverk hans krefst.
- Samþykki: aðgerðir sem kosta peninga eða breyta gögnum viðskiptavina eiga að fara í gegnum mannlegt samþykki, að minnsta kosti í byrjun.
- Skráning: hver aðgerð fulltrúans þarf að vera rekjanleg, svo hægt sé að sjá hvað var gert og af hverju.
- Gögn: hvar gögnin eru unnin og geymd, og hvort þau eru notuð til að þjálfa líkön.
- Gæðamat: mælanleg viðmið um hvenær svar eða aðgerð telst rétt.
Ein áhætta er sérstök fyrir fulltrúa: fyrirmælainnskot (prompt injection). Fulltrúi sem les tölvupóst, vefsíður eða skjöl getur rekist á texta sem reynir að gefa honum ný fyrirmæli, til dæmis að senda gögn annað. Þess vegna á fulltrúi sem les efni utan frá ekki að hafa víðtækar heimildir, og aðgerðir með afleiðingar eiga að krefjast samþykkis. MCP-þjóna frá þriðja aðila þarf líka að meta eins og hvern annan hugbúnað sem fær aðgang að gögnum fyrirtækisins.
Regluverkið skiptir líka máli. Reglugerð ESB um gervigreind (AI Act) kemur til framkvæmda í áföngum og gera má ráð fyrir að hún nái til Íslands í gegnum EES-samninginn. Flestar lausnir í daglegum rekstri falla í lágan áhættuflokk, en þar eru þó kröfur um gagnsæi, til dæmis að fólk viti þegar það á í samskiptum við gervigreind. Það borgar sig að skrá frá byrjun hvaða gervigreind er notuð og til hvers.
Algengar spurningar
Þarf fyrirtækið að binda sig við eitt gervigreindarfyrirtæki til að nota MCP? Nei. Það er kosturinn við opinn staðal. Sami MCP-þjónn getur þjónað ólíkum fulltrúum og ekki þarf að endursmíða tenginguna þótt skipt sé um líkan eða þjónustu.
Er MCP öruggt? Staðallinn sjálfur gerir lausn hvorki örugga né óörugga. Öryggið ræðst af því hvernig þjónninn er smíðaður: hvaða aðgerðir hann býður, hvernig aðgangi er stýrt og hvort aðgerðir eru skráðar. Þjónn sem veitir aðgang að öllu með einum lykli er áhætta, sama hvaða staðall er notaður.
Getur fulltrúi unnið án mannlegs samþykkis? Já, tæknilega, en við mælum með því að byrja með samþykki á öllum aðgerðum sem breyta gögnum. Þegar skráningin sýnir að fulltrúinn hefur gert rétt í nægilega mörgum tilvikum má veita honum meira sjálfstæði í afmörkuðum aðgerðum, til dæmis að flokka erindi eða skrá upplýsingar sem auðvelt er að leiðrétta.
Hvernig er skynsamlegt að byrja?
Byrjið á einu ferli sem er tímafrekt, endurtekið og vel skilgreint. Mælið hvað það kostar í dag, smíðið afmarkaða frumgerð á raunverulegum gögnum og látið fulltrúann vinna með mannlegu samþykki í nokkrar vikur. Þá liggur fyrir hvort ávinningurinn er raunverulegur áður en lengra er haldið.
Til viðmiðunar, ekki sem tilboð: afmörkuð frumgerð fulltrúa á einu ferli, eða MCP-þjónn ofan á kerfi sem er þegar með gott API, gæti tekið 40 til 80 klukkustundir, eða um 0,7 til 1,4 m.kr. án VSK á tímagjaldinu 17.880 kr. Mestu ræður ástand kerfanna sem þarf að tengja og hversu strangt gæðamatið þarf að vera.
Hjá Novamedia notum við gervigreind í eigin vörum á hverjum degi. Í Spjallboxi semur gervigreindin svardrög sem starfsfólk yfirfer og sendir, og Tímabox les kvittanir af mynd. Við opnum líka kerfi fyrir fulltrúum eins og ChatGPT og Claude í gegnum MCP og örugg API. Sama nálgun á við um fulltrúa: byrja smátt, mæla og byggja upp traust áður en fulltrúinn fær meira sjálfstæði.