Fara beint í efni
Novamedia
Ræðum verkefnið

Kerfi sem vinna með gervigreind

Gervigreind og sjálfvirkni

Gervigreind er að færast frá verkfærum sem svara spurningum yfir í fulltrúa sem ljúka verkum. Við hönnum, smíðum og rekum gervigreindarlausnir sem tengjast kerfunum ykkar og skila mælanlegum árangri í daglegum rekstri.

Hvað við gerum

  • 01

    Gervigreindarfulltrúar

    Fulltrúar sem vinna verk í kerfunum ykkar: taka við erindum, sækja gögn, uppfæra skrár og ljúka málum, með mannlegu samþykki þar sem það skiptir máli.

  • 02

    Aðstoð á eigin gögnum

    Spjall og leit sem svarar út frá handbókum, samningum og gögnum fyrirtækisins, með tilvísun í heimildir og aðgangsstýringu.

  • 03

    Skjala- og gagnaúrvinnsla

    Reikningar, kvittanir, umsóknir og samningar lesnir, flokkaðir og skráðir sjálfkrafa beint inn í kerfin sem þið notið.

  • 04

    Kerfi tilbúin fyrir gervigreind

    Við opnum kerfin ykkar fyrir fulltrúum eins og ChatGPT og Claude í gegnum MCP og örugg API, svo þau verði hluti af nýju vinnulagi.

  • 05

    Gervigreindarúttekt

    Úttekt á föstu verði þar sem við finnum og forgangsröðum tækifærunum eftir ávinningi, áhættu og kostnaði, með skýrri áætlun um fyrstu skrefin.

  • 06

    Ábyrg gervigreind í rekstri

    Gögn hýst í Evrópu, aðgangsstýring, gæðamat á svörum og vöktun á kostnaði, auk undirbúnings fyrir nýja reglugerð ESB um gervigreind.

Reynslan

Við notum gervigreind í eigin vörum sem eru í notkun á hverjum degi. Ráðleggingar okkar byggja á því sem virkar í raunverulegum rekstri, ekki kynningarglærum.

Gervigreind í notkun

Þegar í rekstri í okkar eigin vörum

Við smíðum ekki aðeins gervigreindarlausnir fyrir aðra. Þær keyra í vörunum okkar á hverjum degi.

  • Spjallbox

    Gervigreindin semur svardrög út frá fyrri samtölum og þekkingargrunni. Starfsfólk yfirfer og sendir.

    Skoða vöru
  • Tímabox

    Kvittanaskanni sem les kvittanir af mynd og skráir útgjöldin sjálfkrafa.

    Skoða vöru
  • Stats

    Greinir umferð á vefnum og bendir á hvað breyttist og hvað gæti verið næsta skref.

    Skoða vöru

Ferlið

Svona vinnum við verkefnið

  1. Tækifæragreining

    Við skoðum ferla, kerfi og gögn og finnum verkefnin þar sem gervigreind skilar mælanlegum ávinningi.

  2. Frumgerð á raunverulegum gögnum

    Afmörkuð útgáfa sem sannar, eða afsannar, ávinninginn áður en lengra er haldið.

  3. Innleiðing í kerfin

    Lausnin tengd við dagleg kerfi með aðgangsstýringu, skráningu og mannlegu samþykki þar sem þarf.

  4. Rekstur og gæðamat

    Við mælum gæði svara, vöktum kostnað og uppfærum lausnina eftir því sem tækninni fleygir fram.

Áður en við byrjum

Fyrsta skrefið á að minnka óvissu

Við byrjum ekki á að selja ákveðna tækni. Fyrst staðfestum við vandamálið, hvað árangur þýðir og hvort sérsmíði sé yfirhöfuð rétta leiðin.

  • 01

    Skýrt umfang

    Þið fáið tillögu að umfangi, áföngum og kostnaðarramma áður en framkvæmd hefst.

  • 02

    Ákvörðun byggð á gögnum

    Við skoðum núverandi ferli og kerfi og veljum minnsta skrefið sem sannar ávinninginn.

  • 03

    Ábyrgð eftir afhendingu

    Rekstur, viðhald og næstu útgáfur eru ræddar frá byrjun — ekki þegar vandamál kemur upp.

Ræðum verkefnið

Segðu okkur frá stöðunni eða taktu stutta þarfagreiningu. Við svörum með raunhæfu mati á næstu skrefum — án skuldbindinga.