Sérkerfi og öpp
Við smíðum hugbúnað fyrir viðskiptavini og starfsfólk, sniðinn að því hvernig fyrirtækið þitt vinnur og með gervigreind þar sem hún skilar ávinningi.
Þjónusta
Við hönnum, smíðum og rekum hugbúnað fyrir fyrirtæki sem þurfa meira en staðlaðar lausnir. Sum verkefni kalla á nýtt kerfi, önnur á betri tengingar og flest á samstarf sem heldur áfram eftir að lausnin fer í loftið.
Það sem við gerum
Hver hluti hefur sína sérþekkingu, en sama teymið ber ábyrgð á heildinni frá fyrstu greiningu að daglegum rekstri.
Við smíðum hugbúnað fyrir viðskiptavini og starfsfólk, sniðinn að því hvernig fyrirtækið þitt vinnur og með gervigreind þar sem hún skilar ávinningi.
Við tengjum kerfin ykkar og byggjum gervigreindarfulltrúa sem vinna á milli þeirra, svo endurtekin skráning og handavinna hverfi.
Við sjáum um viðhald, eftirlit og næstu umbætur, þar á meðal gæðamat og vöktun á gervigreindarlausnum í notkun.
Vefsíða, vörumerki Novamedia, býður sérhannaðar veflausnir í áskrift.
Hvernig við vinnum
Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvað á að smíða áður en við tölum saman. Við hjálpum þér að afmarka þörfina, velja fyrstu skrefin og ákveða hvaða samstarf hentar.
Við förum yfir stöðuna og skilgreinum lausn, forgangsröðun og kostnaðarramma áður en stærri vinna hefst.
Við vinnum í skýrum áföngum svo þú getir séð, prófað og metið lausnina á leiðinni.
Þegar lausnin er komin í notkun getum við þróað hana áfram og séð um rekstur innan samþykkts mánaðarlegs umfangs.