Fara beint í efni
Novamedia

Vörur

Eigin hugbúnaður og vörumerki Novamedia

Auk þess að smíða fyrir viðskiptavini rekur Novamedia eigin hugbúnaðarvörur í daglegri notkun hjá íslenskum fyrirtækjum, og sérhæfð vörumerki á afmörkuðum sviðum.

01 — Eigin hugbúnaður

Vörur sem við smíðuðum og rekum í framleiðslu

Hver vara byrjaði sem raunverulegt vandamál hjá íslenskum fyrirtækjum. Við hönnuðum lausnina, forrituðum hana og rekum hana á hverjum degi.

Rekstur og starfsfólk

Verkfæri fyrir daglegan rekstur

Lausnir sem einfalda samskipti, tímaskráningu, biðraðir og lögbundin ferli.

02Vildarkerfi

Mottó

Vildarklúbbur og markaðssamskipti í einu kerfi: skráningar, tölvupóstur, SMS og sjálfvirk flæði — svo þú sjáir hvað skilar sölu, ekki bara opnunarhlutfall.

motto.is
Mottó — Vildarkerfi
03Tímaskráning

Tímabox

Tímaskráningarkerfi fyrir íslensk fyrirtæki: GPS-stimplun, vaktaplan, fjarveruskráning og Payday-tenging. Öpp fyrir iPhone og Android — og gervigreind sem les kvittanir og skrifar vikusamantektir.

timabox.is
Tímabox — Tímaskráning
06Númerakerfi

Netmiði

Stafrænt númerakerfi án vélar: viðskiptavinur slær inn símanúmer, fær SMS með númeri og slóð og fylgist með í símanum. Starfsfólk kallar næsta úr stjórnborði — ekkert app, engin pappírsrúlla.

netmidi.is
Netmiði — Númerakerfi

Sala og markaður

Kerfi sem tengja umferð, samskipti og tekjur

Netverslun, markaðsgreining og vefmælingar sem hjálpa fyrirtækjum að sjá hvað virkar.

05Markaðsgreining

Metric

Mælaborð fyrir íslensk fyrirtæki sem sameinar auglýsingatölur frá Meta, Google og TikTok við Shopify, bókhald og greiðslugáttir — leiðréttir tvítalningu miðlanna og sýnir framlegð eftir hverja auglýsingakrónu, ekki bara veltu.

metric.is
Metric — Markaðsgreining

Sérhæfður rekstur

Heildarkerfi fyrir afmarkaðar atvinnugreinar

Bókanir, greiðslur og rekstrarstýring fyrir bílastæði, bílaleigur og gististaði.

09Bílastæðakerfi

BasePark

Rekstrarkerfi fyrir bílastæðafyrirtæki: bókanir, verðskrár, hlið og reikningagerð í einu hvítmerktu kerfi fyrir hvern rekstraraðila. Carpark.is er meðal fyrirtækja sem keyra á BasePark.

basepark.io
BasePark — Bílastæðakerfi

02 — Vörumerki

Sérhæfð vörumerki í rekstri Novamedia

Sum verkefni kalla á sérhæfða nálgun og eigið vörumerki. Öll eru rekin af Novamedia ehf.

Model AI

AI-vefsíðugerð

Vefsíðugerð með gervigreind: þú lýsir fyrirtækinu þínu og Model smíðar fullbúna íslenska vefsíðu á nokkrum mínútum — með texta, myndum og bókunarformi.

Skoða vef — model.is
Vefsíða

Vefsíðugerð

Hagkvæm vefsíðugerð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki: vefsíður, netverslanir og markaðssetning á föstu, gagnsæju verði.

Skoða vef — vefsida.is
Stakk

Vefhýsing

Managed WordPress-hýsing á Íslandi með sjálfvirkri afritun, hraðvirkum NVMe-netþjónum og persónulegri þjónustu.

Skoða vef — stakk.is

Vantar þig tilbúna lausn frekar en sérsmíði?

Vörurnar okkar eru í opinni notkun — kynntu þér þær eða hafðu samband og við bendum á þá sem hentar best.

Vantar þig sérsmíðaða lausn?