Fara beint í efni
Novamedia
Ræðum verkefnið

Öryggi og rekstur

Kerfin þín í öruggum höndum.

Það sem þú getur gengið að vísu þegar við smíðum og rekum hugbúnað fyrir þig: hver á gögnin, hvernig þau eru varin og hvað gerist þegar eitthvað bregst.

Það sem við skuldbindum okkur til

Skýrar reglur, skriflega.

Allt hér byggir á skilmálum okkar og rekstrarleiðum í verðskrá. Þjónustustig og annað sem skiptir þinn rekstur máli er staðfest í samningi.

  • 01

    Gögnin eru þín

    Gögn, efni og vörumerki sem þú lætur okkur í té eru og verða þín eign. Þegar við vinnum persónuupplýsingar fyrir þína hönd gerum við vinnslusamning í samræmi við persónuverndarlög.

  • 02

    Varin gögn

    Við beitum aðgangsstýringu, dulkóðun í flutningi og afritun til að vernda gögn. Komi upp öryggisfrávik er tilkynnt um það án tafar og við aðstoðum eftir þörfum.

  • 03

    Afritun og vöktun

    Rekstrarleiðir okkar fela í sér daglegt afrit, uppitímavöktun allan sólarhringinn og mánaðarlegar öryggisuppfærslur. Fyrir kerfi með gagnagrunn bætist við afritun með prófaðri endurheimt og villuvöktun.

  • 04

    Viðbragð þegar á reynir

    Fyrir kerfi sem reksturinn stendur og fellur með bjóðum við viðbragð innan fjögurra klukkustunda á vinnutíma, mánaðarlega stöðuskýrslu og öryggisúttekt á hverjum ársfjórðungi. Sérstakt þjónustustig er hægt að semja um.

  • 05

    Eignarhald á hreinu

    Afhending kóða og eignarhald eru skilgreind í samningi áður en verkefnið hefst. Óski aðilar ekki annars færð þú ótímabundinn afnotarétt af lausninni að greiðslu lokinni.

  • 06

    Smíðað til að endast

    Við veljum tækni sem endist og smíðum þannig að aðrir geti tekið við. Við tökum líka við kerfum sem aðrir smíðuðu, eftir tæknilega úttekt á föstu verði.

Sömu kröfur í okkar eigin vörum

Skilagátt, gagnamóttaka Novamedia, tekur við umsóknum og skjölum með rafrænum skilríkjum, dulkóðar gögnin og geymir þau innan EES.

Skoða Skilagátt