Fara beint í efni
Novamedia
Ræðum verkefnið

Um Novamedia

Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki síðan 2006

Novamedia ehf. hefur starfað óslitið í tæp tuttugu ár — lengur en flest þau kerfi sem það hefur leyst af hólmi. Við hönnum, smíðum og rekum stafrænar lausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir um allt land.

01 — Sagan

Frá vefsíðum að heilum kerfum

Novamedia var stofnað árið 2006 og byrjaði þar sem flest tæknifyrirtæki byrja: að smíða vefsíður. Verkefnin stækkuðu með viðskiptavinunum — vefir urðu að vefkerfum, vefkerfi að sérsmíðuðum hugbúnaði og hugbúnaðurinn kallaði á samþættingar, hýsingu og daglegan rekstur.

Í dag rekur félagið eigin hugbúnaðarvörur sem íslensk fyrirtæki nota á hverjum degi, auk sérhæfðra vörumerkja á sviði vefsíðugerðar, netverslana og hýsingar. Sú reynsla — að bera sjálf ábyrgð á kerfum í framleiðslu, allan sólarhringinn — mótar hvernig við vinnum fyrir viðskiptavini.

Sama teymi fylgir verkefninu frá fyrsta fundi til daglegs reksturs. Fólkið sem þú talar við á fyrsta fundi er sama fólkið og hannar, forritar og rekur lausnina þína.

Teymið

Fólkið sem þú talar við

Hjá okkur ertu í beinu sambandi við fólk sem þekkir verkefnið þitt — ekki miðakerfi eða þjónustuver.

Hér eru þau sem viðskiptavinir eiga oftast samskipti við. Að baki þeim er breiðari hópur hönnuða, forritara og sérfræðinga sem koma inn í verkefni eftir þörfum.

02 — Í tölum

2006
Stofnár
100+
Viðskiptavinir frá upphafi
11
Eigin hugbúnaðarvörur
3
Sérhæfð vörumerki

03 — Vinnubrögð

Það sem þú getur gengið að vísu

01

Ábyrgð

Við skilum ekki og hverfum. Lausnir sem við smíðum eru vaktaðar, uppfærðar og þróaðar áfram — og þegar eitthvað bregst svörum við.

02

Skýrleiki

Mannamál um tækni, verð og stöðu verkefna. Þú átt alltaf að vita hvað er búið, hvað er eftir og hvað það kostar.

03

Langtímahugsun

Við veljum tækni sem endist og smíðum þannig að aðrir geti tekið við — þó reynslan sýni að viðskiptavinir okkar staldri lengi við.

04 — Fjölskyldan

Vörur og vörumerki Novamedia

Auk þjónustu við viðskiptavini rekur Novamedia eigin hugbúnaðarvörur og sérhæfð vörumerki.

Sérhæfð vörumerki

Kynnumst betur

Segðu okkur frá stöðunni og við svörum með raunhæfu mati á næstu skrefum.