

Vefir sem eru hluti af rekstrinum, ekki bara kynning á honum
Stærri vefir eru sjaldnast bara kynning. Þeir taka við bókunum, selja, tengjast innri kerfum og eru verkfæri sem starfsfólk og viðskiptavinir nota á hverjum degi. Við hönnum og smíðum slíka vefi frá grunni.
Mínar síður, umsóknir, bókanir og innri tól sem leysa raunveruleg verkefni í rekstrinum.
Sala tengd birgðum, bókhaldi og greiðslulausnum svo pantanir flæði án handavinnu.
Hraðir og aðgengilegir vefir byggðir á eigin hönnun, með vefumsjón sem teymið þitt ræður við.
Við höfum smíðað vefi og vefkerfi frá 2006 og rekum mörg þeirra enn í dag. Ef þig vantar einfaldari fyrirtækjavef bendum við á Vefsíðu, vörumerki Novamedia, sem býður sérhannaða vefi í áskrift.
Verkefni í framkvæmd
Valin dæmi um verkefni þar sem teymið okkar bar ábyrgð á hönnun, smíði eða innleiðingu.
Ferlið
Hvað á vefurinn að gera fyrir reksturinn, hverjir nota hann og við hvaða kerfi þarf hann að tala?
Flæði og útlit unnið og prófað saman áður en forritun hefst.
Vefurinn byggður í sýnilegum áföngum og prófaður á öllum tækjum.
Birting, mælingar, viðhald og áframhaldandi þróun eftir að vefurinn fer í loftið.
Áður en við byrjum
Við byrjum ekki á að selja ákveðna tækni. Fyrst staðfestum við vandamálið, hvað árangur þýðir og hvort sérsmíði sé yfirhöfuð rétta leiðin.
Þið fáið tillögu að umfangi, áföngum og kostnaðarramma áður en framkvæmd hefst.
Við skoðum núverandi ferli og kerfi og veljum minnsta skrefið sem sannar ávinninginn.
Rekstur, viðhald og næstu útgáfur eru ræddar frá byrjun — ekki þegar vandamál kemur upp.
Segðu okkur frá stöðunni eða taktu stutta þarfagreiningu. Við svörum með raunhæfu mati á næstu skrefum — án skuldbindinga.