Fara beint í efni
Novamedia
Ræðum verkefnið

Frá fyrstu hugmynd að útgefnu appi í App Store og Google Play

Appþróun fyrir iOS og Android

Gott app er ekki bara vefur í minni skjá. Við greinum notkunina, hönnum upplifunina og smíðum appið, bakendann og samþættingarnar sem þarf til að lausnin virki áreiðanlega í daglegri notkun.

Hvað við gerum

  • 01

    App fyrir viðskiptavini

    Þjónusta, pantanir, bókanir, tilkynningar og tryggðarkerfi sem færa fyrirtækið nær viðskiptavininum.

  • 02

    App fyrir starfsfólk

    Vinnuflæði, tímaskráning, vettvangsvinna og gagnasöfnun með myndavél, staðsetningu og virkni án nets.

  • 03

    iOS, Android og bakendi

    React Native, Flutter eða native þróun eftir þörfum, tengd öruggum API-um og umsýslukerfum.

Reynslan

Við höfum ekki aðeins smíðað öpp fyrir aðra. Spjallbox og Tímabox eru eigin öpp sem við höfum hannað, gefið út og rekum sjálf á iOS og Android. Við þekkjum því allt ferlið frá kóða og prófunum að samþykki verslana og rekstri eftir útgáfu.

Öpp í raunverulegum rekstri

Skoðaðu öpp sem við höfum gefið út sjálf

Spjallbox og Tímabox eru aðgengileg í App Store og Google Play og notuð daglega af íslenskum fyrirtækjum.

Ferlið

Svona vinnum við verkefnið

  1. Greining og afmörkun

    Við skilgreinum notendur, lykilverk og minnstu útgáfu sem getur sannreynt virði appsins.

  2. UX og frumgerð

    Flæði og skjáir eru hannaðir og prófaðir áður en kostnaðarsöm forritun hefst.

  3. Þróun og prófanir

    App, bakendi og tengingar eru smíðuð í sýnilegum lotum og prófuð á raunverulegum tækjum.

  4. Útgáfa og rekstur

    Við sjáum um App Store og Google Play, vöktun, uppfærslur og áframhaldandi þróun.

Áður en við byrjum

Fyrsta skrefið á að minnka óvissu

Við byrjum ekki á að selja ákveðna tækni. Fyrst staðfestum við vandamálið, hvað árangur þýðir og hvort sérsmíði sé yfirhöfuð rétta leiðin.

  • 01

    Skýrt umfang

    Þið fáið tillögu að umfangi, áföngum og kostnaðarramma áður en framkvæmd hefst.

  • 02

    Ákvörðun byggð á gögnum

    Við skoðum núverandi ferli og kerfi og veljum minnsta skrefið sem sannar ávinninginn.

  • 03

    Ábyrgð eftir afhendingu

    Rekstur, viðhald og næstu útgáfur eru ræddar frá byrjun — ekki þegar vandamál kemur upp.

Ræðum verkefnið

Segðu okkur frá stöðunni eða taktu stutta þarfagreiningu. Við svörum með raunhæfu mati á næstu skrefum — án skuldbindinga.