Er Stats í samræmi við persónuverndarlög og þarf ég kökuborði?
Nei, venjulega ekki. Stats notar ekki vafrakökur sem krefjast samþykkis, svo þú þarft í flestum tilfellum ekki kökuborði fyrir Stats. IP-tölur eru unnar í skamma stund til að greina svæði og telja gesti sama dag — þær eru ekki vistaðar.
Hvernig er Stats öðruvísi en Google Analytics?
Stats er einfaldara, léttara og persónuverndarvænna. Skriftan okkar er undir 1KB (GA er yfir 45KB), við bjóðum AI-innsýn á mannamáli og heimskort — auk sundurliðunar niður á sveitarfélög fyrir íslenska umferð.
Hvað er AI-innsýn?
Gervigreindin fer daglega yfir gögnin þín og skilar skýrri samantekt sem þú getur nýtt samstundis — til dæmis breytingar á umferð, helstu uppruna eða heimsóknir frá ChatGPT — án þess að grafa í flóknar skýrslur.
Mælir Stats umferð frá ChatGPT og öðrum AI-verkfærum?
Já. Stats greinir sérstaklega tilvísanir frá ChatGPT, Claude, Perplexity og öðrum AI-leitarverkfærum svo þú sjáir nákvæmlega hversu mikla umferð hvert þeirra skilar.
Hvað kostar Stats og er frí prufa í boði?
30 daga prufa án greiðslukorts, með öllum eiginleikum Growth-pakkans. Eftir það er hægt að greiða eða vera á frípakkanum (5.000 síðuflettingar, 1 lén). Verð: Company 4.900 kr., Growth 9.900 kr., Agency 39.900 kr. á mánuði án VSK.
Hversu erfitt er að setja upp?
Venjulega undir tveimur mínútum. Notaðu fríu WordPress-viðbótina eða líma einu kóðabroti inn á vefinn þinn. Við styðjum öll helstu kerfi og hjálpum frítt við uppsetningu ef þörf er á.