DNA
Eitt erfðaefni. Margar lausnir.
Á tuttugu árum höfum við byggt vörumerki og hugbúnaðarvörur sem eru í daglegri notkun. Þær eru ólíkar á yfirborðinu en byggja á sömu einingunum, og sömu einingar fara í hvert sérsmíðað verkefni.
- Hugbúnaður frá
- 2006
- Vörumerki
- 3
- Hugbúnaðarvörur
- 11
- Byggingareiningar
- 8
Vistkerfið
Hvernig allt tengist
Veldu byggingareiningu til að sjá hvaða vörur nota hana, eða veldu vöru til að sjá úr hverju hún er gerð.
Novamedia
Sama teymið hannar, smíðar og rekur allar vörurnar. Það sem virkar í einni fer í þá næstu.
Vörumerki · AI-vefsíðugerð
Model AI
Vefsíðugerð með gervigreind: þú lýsir fyrirtækinu þínu og Model smíðar fullbúna íslenska vefsíðu á nokkrum mínútum — með texta, myndum og bókunarformi.
Opna vefVörumerki · Vefsíðugerð
Vefsíða
Systurfyrirtæki fyrir einfaldari vefi: sérhannaðar vefsíður og netverslanir í mánaðaráskrift fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Opna vefVörumerki · Vefhýsing
Stakk
Managed WordPress-hýsing á Íslandi með sjálfvirkri afritun, hraðvirkum NVMe-netþjónum og persónulegri þjónustu.
Opna vefVara · Netverslun
Cartico
Netverslunarkerfi hannað á Íslandi fyrir alþjóðlegan markað: verslun í loftið á nokkrum mínútum, allar helstu greiðslugáttir og engin færslugjöld.
Skoða vöruVara · Bókunarkerfi hótela
Omnistay
Bókunarkerfi fyrir hótel og gistihús sem sleppir þóknun bókunarsíðna: eigin bókunarvél, greiðslur og sjálfvirk samskipti við gesti.
Skoða vöruVara · Bílaleigukerfi
Omniride
Rekstrarkerfi fyrir bílaleigur: eigin bókunarvefur, greiðslur, skoðunarskýrslur og verðlagning í einu kerfi — frá fyrstu leit að reikningi.
Skoða vöruVara · Bílastæðakerfi
BasePark
Rekstrarkerfi fyrir bílastæðafyrirtæki: bókanir, verðskrár, hlið og reikningagerð í einu hvítmerktu kerfi fyrir hvern rekstraraðila. Carpark.is er meðal fyrirtækja sem keyra á BasePark.
Skoða vöruVara · Númerakerfi
Netmiði
Stafrænt númerakerfi án vélar: viðskiptavinur slær inn símanúmer, fær SMS með númeri og slóð og fylgist með í símanum. Starfsfólk kallar næsta úr stjórnborði — ekkert app, engin pappírsrúlla.
Skoða vöruVara · Vildarkerfi
Mottó
Vildarklúbbur og markaðssamskipti í einu kerfi: skráningar, tölvupóstur, SMS og sjálfvirk flæði — svo þú sjáir hvað skilar sölu, ekki bara opnunarhlutfall.
Skoða vöruVara · Þjónustuborð
Spjallbox
Íslenskt þjónustuborð: netspjall, tölvupóstur, samfélagsmiðlar og eyðublöð í einu innhólfi. Gervigreindin semur svardrög — starfsfólk á lokaorðið.
Skoða vöruVara · Tímaskráning
Tímabox
Tímaskráningarkerfi fyrir íslensk fyrirtæki: GPS-stimplun, vaktaplan, fjarveruskráning og Payday-tenging. Öpp fyrir iPhone og Android — og gervigreind sem les kvittanir og skrifar vikusamantektir.
Skoða vöruVara · Uppljóstrunargátt
Netbox
Örugg og nafnlaus uppljóstrunargátt sem hjálpar fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri að uppfylla lög nr. 40/2020.
Skoða vöruVara · Vefgreining
Stats
Vefgreiningarkerfi á íslensku sem safnar tölfræði án vafrakaka og uppfyllir persónuverndarlög. AI-innsýn bendir sjálfkrafa á mikilvægar breytingar.
Skoða vöruVara · Markaðsgreining
Metric
Mælaborð fyrir íslensk fyrirtæki sem sameinar auglýsingatölur frá Meta, Google og TikTok við Shopify, bókhald og greiðslugáttir — leiðréttir tvítalningu miðlanna og sýnir framlegð eftir hverja auglýsingakrónu, ekki bara veltu.
Skoða vöru
Byggingareiningarnar
Einingarnar í öllu sem við smíðum
Þegar við smíðum fyrir þig byrjum við ekki á auðu blaði. Þessar einingar eru þegar í rekstri og hafa sannað sig hjá raunverulegum notendum.
- 01
Vefur og hýsing
Vefsmíði, vefumsjón og rekstur á íslenskum netþjónum.
Model AI · Vefsíða · Stakk · Cartico
- 02
Greiðslur og bókanir
Greiðslugáttir, bókunarvélar, verðlagning og reikningagerð.
Cartico · Omnistay · Omniride · BasePark
- 03
Samþættingar
API, webhooks og tengingar við bókhald, auglýsingakerfi og önnur kerfi.
Cartico · Omnistay · BasePark · Spjallbox · Tímabox · Metric
- 04
Gögn og mælaborð
Greining, mælaborð og yfirsýn sem styðja ákvarðanir.
Netmiði · Netbox · Stats · Metric
- 05
Öryggi og persónuvernd
Dulkóðun, gögn hýst í Evrópu og lausnir sem standast persónuverndarkröfur.
Spjallbox · Netbox · Stats
- 06
Samskipti
Netspjall, tölvupóstur, SMS og sjálfvirk skilaboð til viðskiptavina.
Omnistay · Netmiði · Mottó · Spjallbox
- 07
Öpp
Öpp fyrir iOS og Android, gefin út í App Store og Google Play.
Spjallbox · Tímabox
- 08
Gervigreind
Svardrög, kvittanalestur, textagerð og innsýn sem keyra í daglegri notkun.
Model AI · Cartico · Mottó · Spjallbox · Tímabox · Stats
Byggðu kerfið þitt á sama grunni.
Sérsmíðað kerfi sem nýtir einingar sem þegar hafa sannað sig í daglegum rekstri.