Fara beint í efni
Novamedia

Persónuvernd

Hvernig við vinnum með upplýsingar

Við söfnum aðeins upplýsingum sem þarf til að svara erindum, meta verkefni og reka vefinn á öruggan og gagnsæjan hátt.

Síðast uppfært 30. ágúst 2026

Ábyrgðaraðili

Novamedia ehf., kt. 540606-2260, er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er hér. Fyrirspurnum um persónuvernd má beina á hallo@novamedia.is.

Upplýsingar sem þú sendir okkur

Þegar þú sendir fyrirspurn eða þarfagreiningu vinnum við með þær upplýsingar sem þú velur að gefa upp til að svara erindinu og undirbúa raunhæft mat eða tilboð.

  • Nafn, netfang, símanúmer og fyrirtæki.
  • Lýsing á verkefni, áhugasvið, tímarammi og fjárhagsrammi.
  • Svör úr þarfagreiningu og þær ráðleggingar sem hún skilar.
  • Slóð, tilvísun og UTM-upplýsingar þegar þær fylgja heimsókninni.

Tilgangur og varðveisla

Upplýsingarnar eru notaðar til að svara erindum, forgangsraða eftirfylgni, undirbúa samstarf og verja þjónustuna gegn misnotkun. Fyrirspurnir eru almennt yfirfarnar og eytt innan 24 mánaða ef ekki verður úr viðskiptasambandi, nema lög eða lögmætir hagsmunir krefjist lengri varðveislu.

Vefmælingar, netspjall og vafrakökur

Stats er notað til vefmælinga án vafrakaka. Samþykki þitt er vistað í localStorage vafrans svo vefurinn muni valið.

Spjallbox hleðst aðeins þegar þú samþykkir valfrjálsar vafrakökur. Spjallið getur vistað gögn til að muna samtal og halda þjónustunni virkri.

Þjónustuaðilar

Við notum þjónustuaðila til hýsingar, tölvupóstsendinga, vefmælinga, netspjalls og varna gegn misnotkun. Þar á meðal eru Vercel, SMTP2GO, Stats, Spjallbox og Upstash. Þeir vinna upplýsingar samkvæmt samningum og eigin öryggis- og persónuverndarskilmálum.

Réttindi þín

Þú getur óskað eftir aðgangi, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu og andmælt vinnslu þegar við á. Hafðu samband á hallo@novamedia.is. Þú getur einnig lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd.