

Atvinnugreinar
Ráðgjöf, tryggingar, lögfræði og önnur sérhæfð þjónusta þarf oft kerfi sem tilbúinn hugbúnaður nær ekki utan um. Við smíðum og rekum það sem gerir reksturinn skalanlegan.
Staðan
Hvað við smíðum
Hugbúnaður utan um það ferli sem gerir þjónustuna ykkar ólíka — ekki enn eitt almenna málið.
Gögn flæða milli kerfa sem þegar eru í notkun. Fyrst sjálfvirkni, svo gervigreind þar sem hún bætir einhverju við.
Þjónustuvefur eða gátt sem sýnir stöðu, tekur við erindum og tengist innra kerfinu.
Verkefni í greininni
Valin dæmi þar sem teymið okkar bar ábyrgð á hönnun, smíði eða innleiðingu.
Oft er vandinn gögn sem flæða ekki á milli kerfa. Hvenær samþætting og sjálfvirkni leysa málið, hvenær gervigreind bætir við og í hvaða röð borgar sig að vinna.
Kauptu tilbúið þar sem þú ert eins og aðrir og smíðaðu þar sem sérstaðan liggur. Rammi til að meta heildarkostnað yfir fimm ár, áhættu og útgönguleið.
Lýstu rekstrinum. Við bendum á raunhæfustu leiðina út frá því sem þarf að gerast, ekki út frá heiti atvinnugreinarinnar.